Ísbjörg

Íslendingafélagið í Björgvin

  • Forsíða
  • Götukort
  • Myndir
  • Póstur
  • Gestabók

Atburðadagatal

12.09.08 - 14.09.08 - Klakamótið (50 Dagar)

Nýlegar færslur

Vel heppnað tónlistar sumar.
mivikudagur, jl 23 2008

Nýtt á isbjorg.org, vefmyndavélar
mivikudagur, jl 2 2008

Vefmyndavélar í Bergen og á Íslandi
mivikudagur, jl 2 2008

Klakamótið 2008
mivikudagur, jl 2 2008

net-mál Íslendingafélagsins
fimmtudagur, jn 19 2008

17. júní 2008
sunnudagur, jn 15 2008

17 Júní
rijudagur, jn 3 2008

Ísbjörg

Íslendingarfélagið í Björgvin
Postbox 383 sentrum
5805 Bergen
Vefsíða: http://www.isbjorg.org
Netfang: isbjorg@gmail.com

út um víðan völl

Vefmyndavélar í Bergen og á íslandi

Mivikudagur, 23. jl 2008

Vel heppnað tónlistar sumar.

Í Bergen eru búnir að vera helling af góðum tónleikum í sumar og það sem gerir þetta sumar sérstakt er hvað mörg stór númer og stórir tónleikar hafa verið haldnir, til að toppa þetta kemur þessi snillingur í ágúst.

NEIL YOUNG

BT.NO
BA.NO

Íslendingafélagið í Björgvin í Aðrir viðburðir sendi klukkan 21:40 | Athugasemdir (0) | Tilvísanir (0)

Mivikudagur, 2. jl 2008

Nýtt á isbjorg.org, vefmyndavélar

Nú höfum við sett upp tenglasafn með vefmyndavélum á íslandi og í Bergen, listinn er fenig af hinum og þessum vefum, ef að þú veist um skemmtilega vefmyndavél mátt þú senda tengilinn á isbjorg@gmail.com

Vefmyndavélar ísbjargar

Íslendingafélagið í Björgvin sendi klukkan 15:46 | Athugasemdir (0) | Tilvísanir (0)

Klakamótið 2008

Kæri viðtakandi,

nú er komið að SF Heklu mönnum að halda hið árlega Klakamót, knattspyrnumót Íslendinga á Norðurlöndunum. Mótið verður haldið í Árósum (Danmörku) aðra helgina í September og því er gott að fara að huga að því að mynda lið. Það væri einnig frábært ef þú gætir komið þessum skilaboðum til þeirra Íslensku knattspyrnufélaga sem eru starfrækt í ykkar bæjarfélagi eða borg. Gaman væri að sjá sem flesta, aðstaðan sem verður notuð í ár er til fyrirmyndar og gist verður í Ellkærskolen og vellirnir sem notaðir, eru beint fyrir framan, þannig að það er ekki langt á völlinn ;-) Verð per leikmann verður með sama sniði og hefur verið undanfarin ár eða 350 DKK, innifalið í þessu verði mun vera mótsgjaldið, gistingin og svo flottur kvöldverður á laugardagskvöldinu. Með þessum skilaboðum er ég að reyna að hvetja sem flesta til þess að fara að mynda lið og senda má staðfestingu á mig, davidingi.danielsson@gmail.com, elvar83@gmail.com eða ellijod@gmail.com. Það er bara gott að fá að sjá hversu margir hafa hug á að láta sjá sig og sjá aðra.

Helstu upplýsingar eru:
350 DKK þáttökugjald
Haldið aðra helgina í September (helgin 12-14.)
Haldið í Árósum í DK
7-11 karlmenn í liði, undantekning ef lið sendir einungis eitt lið til keppni (gæti sloppið þá með 12-13)
Sparkfjelagið Hekla mun reyna að koma upp síðu fljótlega en þangað til er hægt að kíkja inn á síðu SF Heklu, www.sfhekla.dk þangað til

með fyrirfram þökk,

Davíð Ingi Daníelsson,
Klakamótsnefnd 2008

Íslendingafélagið í Björgvin í Aðrir viðburðir sendi klukkan 10:17 | Athugasemdir (0) | Tilvísanir (0)

Fimmtudagur, 19. jn 2008

net-mál Íslendingafélagsins

Í haust mun Íslendingafélagið skipta um netþjónustu og um leið auka þjónustu okkar við félagsmenn á netinu , við höfum verið að biðja fólk um að skrá sig á netfangalista íslendingafélagsins og hafa sumri ekki fengið nein viðbrögð, ástæðan er að netþjónustan sem við erum með í dag er ekki nontendavæn og tekur allt of mikinn tíma til að eiga við. Með nýrri þjónustu vonumst við til að geta gert kerfið mun skilvirkara og munu fréttabréf og fréttir af síðuni berast félagsmönnum með e-pósti. Ástæða þess að við erum að biðja fólk að skrá sig á netfangalista er til að draga úr kostnaði við að senda fréttabréf. Einnig vonumst við til að fá meiri viðbrögð frá fólki og meiri notkun á síðunni.

Íslendingafélagið í Björgvin í Frá Íslendingafélaginu sendi klukkan 19:27 | Athugasemdir (0) | Tilvísanir (0)

Sunnudagur, 15. jn 2008

17. júní 2008

17. júní var haldinn hátíðlegur laugardaginn 14. júní, að þessu sinni var haldið upp á daginn í sal á Hoffsalen, Kong Oscars gate 88, skemmtilegur og bjartur salur sem rúmaði okkur vel. boðið var upp á læri og meðlæti, kaffi og pönnukökur. dagurinn heppnaðist vel að öllu leiti og vonandi eigum við eftir að eiga fleiri svo daga í framtíðinni.

með kveðju.

Íslendingafélagið í Bregen

Myndir frá deginum.

17 júní 2008

Íslendingafélagið í Björgvin í Frá Íslendingafélaginu sendi klukkan 12:22 | Athugasemdir (0) | Tilvísanir (0)

rijudagur, 3. jn 2008

17 Júní

DAGSKRÁ 17. JÚNÍ 2008

(Ath. haldinn 14. júní)

Að þessu sinni verður 17. júní alveg sérstaklega glæsilegur. Þar sem Þorrablótið fauk út í veður og vind, þá ætlum við að hafa veglegri veitingar en venjan er: Lambalæri og meðlæti. Það eina sem þið þurfið að gera er að koma og njóta dagsins í fallegum sal í góðra vina hópi.

Félagið mun að auki vera með rauðvín, bjórsölu, kaffi og meðlæti með kaffinu. Einnig verður sala á happdrættismiðum og eru spennandi verðlaun í boði.

17. júní verður haldinn hátiðlegur laugardaginn 14. júní n.k. og húsið opnar kl. 14.00. Salurinn er vel staðsettur, rétt hjá lestarstöðinni og því létt að komast fyrir þá sem nota strætó eða lest. Heimilisfang er:

Hoffsalen, Kong Oscars gate 88

2. hæð.

Þátttaka félagsmanna og annarra íslendinga hefur verið misjöfn undanfarin misseri. Stundum góð og stundum dræm. Við vonumst eftir góðri mætingu á 17. Júní sem verður haldinn þann 14. júní n.k. Grundvöllur starfsemi íslendingafélagsins í Bergen er sá að fólk sjái sér fært að mæta á þessa helstu viðburði sem fara fram einu sinni á ári hver og eru: Þorrablót, 17. júní og aðalfundur. Hlökkum til að sjá sem flesta.

FRÉTTABRÉFIÐ

Þau ykkar sem vilja fá fréttabréfið í tölvupósti geta nú skráð slíkar óskir á vef okkar. Fréttabréfið verður sent sem "pdf"-skrá þrisvar til fjórum sinnum á ári en með þessum hætti munu fréttir berast fyrr en hefur verið til þessa.

Endilega takið þetta til greina og lækkum óþarfan kostnað félagsins sem felast i póstburðargjöldum og notum tæknina betur.

Íslendingafélagið í Björgvin í Frá Íslendingafélaginu sendi klukkan 16:58 | Athugasemdir (2) | Tilvísun (1)

Laugardagur, 31. ma 2008

Vefurinn varð fyrir áhrifum jarðskjálftana á Íslandi

Tæknileg bilun átti sér stað í vef Íslendingafélagsins og hefur verið um stund, í kvöld tókst stjórn og aukamönnum að koma vefnum aftur í lag og ættu allir að geta séð það sem byrtist á vefnum. Bilunin kom aðeins fram í IE (InternetExplorer) undir ónefndu stýrikerfi. Vefstjórinn fékk bara að vita um bilunina fyrst í kvöld og biðjumst við velvirðinga á þessari bilun.

Íslendingafélagið í Björgvin í Frá Íslendingafélaginu sendi klukkan 00:05 | Athugasemdir (0) | Tilvísanir (0)

Fimmtudagur, 22. ma 2008

Ísland áfram í Eurovision

Framlag Íslands í seinni undankeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, sem fram fór í kvöld, er komið áfram áfram í úrslitakeppnina sem fram fer á laugardag. Þau Regína Ósk og Friðrik Ómar stóðu sig með stakri prýði á sviðinu í Belgrad og sungu sig inn í lokakeppnina.

Alls komust 10 þjóðir áfram en auk Íslands komst Svíþjóð, Danmörk, Króatía, Úkraína, Albanía, Georgía, Lettland, Tyrkland og Portúgal í úrslitin.

Alls munu 25 þjóðir taka þátt á laugardag. Athygli vekur að allar Norðurlandaþjóðirnar komust áfram í ár, en Norðmenn og Finnar komust áfram úr fyrri undankeppninni sem fram fór í Belgrad á þriðjudag.
MBL.IS

YouTube síða Eurobandsins

VG.NO skrifar þetta.

Þess má geta að Norðmenn eru að keppa við Svía í söngvakeppnini, þannig hljómar það allavega í flest öllum fjölmiðlum.

ÁFRAM ÍSLAND

Íslendingafélagið í Björgvin í Aðrir viðburðir sendi klukkan 23:21 | Athugasemdir (0) | Tilvísanir (0)

Mivikudagur, 21. ma 2008

Íslands kynning á VG.NO

Var að fletta í gegnum netmiðlana í dag þegar að ég rakst á þessa kynningu í www.vg.no .

Off-road på Island
Bli med til sagaøya

Íslendingafélagið í Björgvin í Innsent efni sendi klukkan 18:59 | Athugasemdir (0) | Tilvísanir (0)

Sunnudagur, 11. ma 2008

Styrkir veittir til menningarmála

Stjórn Norræna menningarsjóðsins hefur ákveðið að veita 7,4 milljónum danskra króna, jafnvirði rúmum 120 milljónum íslenskra króna, til fjölmargra menningarverkefna sem unnin verða í samstarfi norrænu ríkjanna. Frode Sørensen formaður Norræna menningarsjóðsins, sagði eftir stjórnarfundinn á föstudag, að sérstaklega væri ánægjulegt hve mörg verkefni tengdu saman nýja Norðurlandabúa. Það gæfi tilefni til bjartsýni. Lesa alla greinina.

Íslendingafélagið í Björgvin í Innsent efni sendi klukkan 13:12 | Athugasemdir (0) | Tilvísanir (0)

Listahátíð í Bergen - Íslenski dansflokkurinn

Á Listahátið í Reykjavík sameinast tveir af helstu dansflokkum Norðurlanda í einu stórverkefni, Ambra. Það eru Íslenski dansflokkurinn og Carte Blanche frá Bergen, sem er fremsti nútímadansflokkur Noregs. Heimsfrumsýningin verður á Listahátíð í Reykjavík 23. maí og verða aðeins þrjár sýningar á verkinu í Reykjavík. Þaðan fer sýningin viku seinna á Listahátíðina í Bergen, þar sem verkið verður sýnt tvisvar í Grieghallen. Listahátíðirnar tvær eru meðframleiðendur verksins.

Danshöfundurinn er Ina Christel Johannessen, en hún þykir einn mest spennandi danshöfundur Evrópu um þessar mundir. Íslensku tónlistarkonurnar Kira Kira og Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir semja tónlistina fyrir verkið ásamt þýskum samverkamanni sínum, Dirk Desselhaus.
21 dansari tekur þátt í sýningunni.

Úr ferðabók Jan Erik Ringstad:
Á eldfjallaeyjunni Jan Mayen – Djöflaeyjunni í Norður-Íshafinu – sjást daglega merki um jarðhræringar á jarðskjálftamælum; jörð skelfur, minniháttar skjálftar ganga yfir og endrum og eins vakna eldfjöll til lífsins. Að morgni mánudags þann 6. ágúst árið 2001 uppgötvar starfsmaður á rannsóknarstöð í Íshafinu nýjan dranga úti fyrir ströndinni. Í sjónaukanum sínum kemur hann auga á hval sem rekur að landi og stefnir í strand.

Uppspretta hugmyndarinnar er bláhvalur sem rak á land á strönd Jan Mayen árið 2001. Beinagrind hans er á safni í Noregi og verður notuð í sýningunni.
Höfundar vilja nota sögu hvalsins, þessa ótrúlega dýrs sem syndir um heimsins höf áratugum saman, virðist ætíð vita nákvæmlega hvert hann á að fara og gefur frá sér hljóð á „tungumáli” sem er einstakt og vísindamenn kappkosta enn að skilja.
Sýningin er óður til hvalanna, framleidd af listafólki sem kemur frá löndum sem enn stunda hvalveiðar þrátt fyrir víðtæk mótmæli um heim allan.
Verkið fjallar um samskipti þjóða á milli, einstaklinga, ferðir okkar, leyndardóma og þrár.

Listrænir aðstandendur:
Danshöfundur: Ina Christel Johannessen
Frumsamin tónlist: Kira Kira, Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir, Dirk Desselhaus
Aðstoðamaður danshöfundar: Cecilia Roos
Leikmynd og búningar: graa hverdag AS / Kristin Torp
Ljósahönnun: Kyrre Heldal Karlsen
Hljóðhönnun: Morten Cranner
Lengd: 70 mínútur

Sjá nánar um listræna stjórnendur
og ID og Carte Blanche.

Fengið af síðu Artfest.is
Íslendingafélagið í Björgvin í Aðrir viðburðir sendi klukkan 12:56 | Athugasemdir (0) | Tilvísanir (0)

Fimmtudagur, 8. ma 2008

Fjöllin í Bergen

Rakst á þessa skemmtilegu síðu á ráfi mínu um netið.

Hér er að finna í máli og myndum lista yfir fjöllin í Hordalandi.

http://www.westcoastpeaks.com/hordaland.html

Íslendingafélagið í Björgvin í Innsent efni sendi klukkan 20:30 | Athugasemdir (0) | Tilvísanir (0)

Sunnudagur, 27. aprl 2008

Nýr formaður

Fimmtudaginn 24. apríl var aðalfundur íslendingafélagsins í Bergen, mæting var dræm en til allrar lukku mættu nógu margir til að samþykja reikninga félagsins.

Rædd voru ýmis mál, þ.a.m. hvað verður um félagið og hvaða viðburði á félagið að standa fyrir. Á næsta ári verður félagið 50 ára og má reikna með stórkostlegri flugeldasýningu. þar sem þorrablótinu í ár var aflýst sökum veðurs er stefnt á það að hafa 17. júní veglegan og með meiri dagskra heldur en undanfarin ár.

Smávægilegar breytingar urðu á stjórn félagsins, Regína Verharðsdóttir lætur af formennsku og var Erna Jóhannsdóttir kjörin formaður, aðrir í stjórnini gáfu kost á sér og halda sínum hlutverkum áfram.

Erna Jóhannsdóttir: formaður.
Hjalti H. Gíslason: gjaldkeri
Arna Guðmundsdóttir: ritari
Ingþór Sigurðarson: vefstjóri
Elín Kjartansdóttir.
Guðrún Alma Sigurðardóttir.
páll Snorrason.

Regína Vernharðsdóttir og Eygló Jónsdóttir eru að flytja og þökkum við þeim fyrir frábær störf fyrir félagið.

Aðalfundur 2008

Íslendingafélagið í Björgvin í Frá Íslendingafélaginu sendi klukkan 11:19 | Athugasemdir (0) | Tilvísanir (0)

Sunnudagur, 20. aprl 2008

Íslendingafélagið boðar til aðalfundar

AÐALFUNDARBOÐ

Íslendingafélagið boðar til aðalfundar fimmtudaginn 24. apríl, kl. 20:00.

Fundurinn verður haldinn á sama stað og í fyrra, í kjallaranum á Nattlandsveien 100, inn- gangurinn merktur með fána. Bílastæði eru meðfram innkeyrslunni og á þaki bílageymslunnar, gestastæði. Sýnum góða mætingu.

Veitingar... loforð um pönnukökur og kleinur....

Dagskrá fundarins:

1. Ársskýrsla stjórnar

2. Reikningar félagsins

3. Framkvæmd 17. júní

4. Kjör stjórnar

5. Annað

Þar sem hluti stjórnarinnar er að hverfa af landi brott væri gott að fá inn nýtt fólk og nýjar hugmyndir. Hafið samband ef þið viljið vera með! Meirihluti stjórnarinnar gefur kost á sér áfram.

Eftir áfallið þegar þorrablótið okkar fauk og snjóaði burtu höfum við rætt möguleikann á að gera eitthvað meira úr þjóðhátíðardeginum í ár! Þjóðhátíðardagurinn verður haldinn laugardaginn 14. júní. Allar tillögur og hugmyndir frá félagsmönnum vel þegnar!!

FRÉTTABRÉFIÐ

Þau ykkar sem vilja fá fréttabréfið í tölvupósti geta nú skráð slíkar óskir á vef okkar. Fréttabréfið verður sent sem "pdf"-skrá þrisvar til fjórum sinnum á ári en með þessum hætti munu fréttir berast fyrr en hefur verið til þessa.

Endilega takið þetta til greina og lækkum óþarfan kostnað félagsins sem felast i póstburðargjöldum.
Íslendingafélagið í Björgvin í Frá Íslendingafélaginu sendi klukkan 10:01 | Athugasemdir (0) | Tilvísanir (0)

Laugardagur, 19. aprl 2008

Gestabók

Nýjung á síðu íslendingafélagsins, nú er komin gestabók og annað útlit.

Vonandi legst þetta vel í ykkur lesendur góðir, við hjá Íslendingafélaginu í Bergen óskum eftir efni frá ykkur. Ef að þið eruð með fréttir, sögur, auglýsingar endilega sendið póst á vefstjóra.

Ingþór Sigurðarson vefstjóri

Eitthvað er tæknin að stríða okkur og ekki virkar gestabókin eins og ætlast var til, unnið er að viðgerðum.

þá er gestabókin farin að virka nokkuð eðlilega. Vonandi komið þið til með að nota hana.

Endilega sendi inn hugmyndir og athugasemdir við síðuna.

Íslendingafélagið í Björgvin í Frá Íslendingafélaginu sendi klukkan 10:24 | Athugasemd (1) | Tilvísanir (0)
(Blaðsíða 1 af 3, með samtals 39 færslur) » næsta síða

Upplýsingar

Tenglar
Lög félagsins
Ganga í félagið

Leita

Heimsóknir

Síðast skrifað: 23.07.08 21:40
54 Greinar skrifaðar
5 athugasemdir verið skrifaðar
660 Heimsóknir í þessum mánuði
0 inni á síðuni

Flokkar

  • Aðrir viðburðir
  • Frá Íslendingafélaginu
  • Greinar
  • Innsent efni
  • Smá-auglýsingar


Allir flokkar

Styrktaraðilar

Stjórnin (læst síða)

Stjórnin

Knúið af

Serendipity PHP Weblog

Umsjón vefkerfis

Opna innskráningarsíðu

Design by Free CSS Templates for Serendipity ported by Reinhard